Ferðir um Ísland síðan 1969
Njóttu ferðarinnar með þínum hóp í rútu frá okkur!
Það er markmið okkar hjá GTS að bjóða upp á góða og „framúrskarandi“ þjónustu á öllum sviðum starfseminnar, frá öllu okkar starfsfólki.
Fyrirtækið leggur áherslu á að halda stöðu sinni sem viðurkennt, virt og leiðandi fyrirtæki á öllum sviðum gæðamála sem tengjast starfsemi okkar. Við leitum alltaf nýrra leiða til að bæta enn frekar þá frábæru þjónustu sem við nú þegar veitum.
Markmið GTS er að sýna fram á að rafvæðing sé raunhæfur kostur fyrir hópferðafyrirtæki á Íslandi. Fyrirtækið stefnir að því að vera leiðandi í orkuskiptum á Íslandi í hópferðastarfsemi. GTS leggur áherslu á græna orku, að draga úr mengun og umhverfisvænan rekstur.
Íslensk stjórnvöld hafa í fimm ár veitt verðlaunin „Framúrskarandi fyrirtæki“ fyrir fyrirtæki sem sýna hæstu kröfur sem völ er á. Af öllum íslenskum fyrirtækjum sem sækja um slíka stöðu öðlast aðeins 1% íslenskra fyrirtækja viðurkenninguna. Á hverju þessara 5 ára hefur Guðmundur Tyrfingsson hf. hlotið þessi verðlaun.
Fréttir
GTS er 50 ára
Í dag eru 50 ár frá því að fyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson – GTs ehf var formlega stofnað. Fyrirtækið er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem er rekið frá Selfossi auk þess sem það er með útibú í Reykjavík. Í dag býður fyrirtækið yfir fjörutíu hópferðabíla af öllum...
Viðurkenning
Á árshátíð Markaðsstofu Suðurlands 5. apríl síðastliðinn urðum við þess heiðurs aðnjótandi að hljóta viðurkenningu fyrir framlag okkar í þágu ferðaþjónustu á Suðurlandi 2018.