GTS hefur enn á ný hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026. Þetta er fjórða árið í röð sem GTS hlýtur viðurkenninguna.

Viðurkenningin endurspeglar áframhaldandi áherslu okkar á traustan rekstur, góðan árangur og langtímavöxt. Við erum stolt af því að fá enn á ný viðurkenningu fyrir eljusemi starfsfólks okkar og þá áherslu sem við leggjum á þjónustu við viðskiptavini okkar.