GTS hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2026. Keldan og Viðskiptablaðið taka listann saman á hverju ári.

Listinn byggir á rekstrarárunum 2024 og 2025. Til að komast á hann þarf reksturinn að hafa skilað jákvæðri afkomu, eiginfjárhlutfall að vera yfir 20% og tekjur og eignir að ná ákveðnum lágmörkum.

Viðurkenningin endurspeglar traustan og ábyrgan rekstur sem byggir á vinnu fólksins sem heldur GTS gangandi á hverjum degi. Fyrir viðskiptavini okkar og samstarfsaðila þýðir það fyrirtæki sem hægt er að treysta á.