GTS hefur tekið í notkun glænýan 45 farþega rafdrifinn hópferðabíl, sem er kærkomin viðbót við ört stækkandi rafmagnsflota fyrirtækisins.

Rafmagnsfloti GTS telur nú 10 rafdrifin ökutæki, þar á meðal hópferðabíla og strætisvagna. 

Fleiri bílar eru einnig á leiðinni. Tíu nýir bílar eru nú í skipi á leið til Íslands og er gert ráð fyrir að þeir komi á götuna í lok maí.

Með þessari viðbót heldur GTS áfram að byggja upp nútímalegan og umhverfisvænni flota fyrir farþegaflutninga.