Í dag eru 50 ár frá því að fyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson  – GTs ehf var formlega stofnað. Fyrirtækið er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem er rekið frá Selfossi

auk þess sem það er með útibú í Reykjavík. Í dag býður fyrirtækið yfir fjörutíu hópferðabíla af öllum stærðum og gerðum og starfsmenn eru um 50-60 talsins á ársgrundvelli.

Fjallaferðir voru í miklu uppáhaldi hjá Guðmundi og hann ákvað að kaupa sér bíl til að geta unnið við áhugamál sitt og farið í fjallaferðir með hópa. Hann keypti fyrsta bílinn til fólksflutninga 1962. Þetta var Dogde Weapon, árgerð 1953 sem kom frá Sölu varnaliðseigna. Hann var notaður sem sjúkrabíll hjá hernum en Guðmundur breytti honum í hópferðabíl. Hann byrjaði að stunda hópferðir í mars 1963 samhliða annarri vinnu.  Þennan bíl selur hann aftur haustið 1964 og kaupir annan Weapon af Varnaliðinu, árgerð 1953. Hann endurbyggði þann bíl einnig og breytti í hópferðabíl. Weapon þennan átti hann í ein tólf ár en þá var hann seldur. Fyrirtækið eignaðist seinna aftur þessa bifreið. Hann verði gerður upp og endurbyggður og prýðir nú höfuðstöðvar fyrirtækisins á Selfossi. Hann hefur m.a. komið með jólasveinana úr Ingólfsfjalli til byggða í desember og er svo skreyttur jólaljósum yfir hátíðirnar.

Þann 30. september 1969 var fyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson ehf formlega stofnað og sama ár fór fyrsta heimasmíðaða rútan á götuna. Árið 1971 sneri Guðmundur sér alfarið að rekstri fyrirtækisins og sama ár byggði hann bragga við Nónhóla á Selfossi. Guðmundur Laugdal Jónsson gekk til liðs við nafna sinn árið 1973. Í bragganum voru smíðaðir 14 hópferðabílar til eigin nota auk ýmissa annarra verkefna. Þar voru unnin mörg þrekvirkin og ber þar helst að nefna smíði á 62 farþega rútu árið 1987 sem rétt rúmaðist í húsnæði braggans. Var því fleygt fram að þetta væri sennilega minnsta rútuverksmiðja í heimi.

Árið 1992 var byggð ný aðstaða fyrir bifreiðasmíði og viðgerðir, að Fossnesi 5 Selfossi þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru enn í dag. Fyrirtækið hefur smíðað yfir u.þ.b. 30 nýja bíla frá grunni en auk þess hafa fjölmargir minni bílar verið innréttaðir sem hópferðabílar.

Umhverfis- og öryggismál hafa frá upphafi verið fyrirtækinu hugleikin. Guðmundur Tyrfingsson ehf var fyrsta hópferðafyrirtækið til að móta umhverfis- og öryggisstefnu sem er höfð að leiðarljósi í rekstri fyrirtækisins. Árið 2017 eignaðist fyrirtækið fyrstu rafmagnsrútu landsins sem er skref í átt að vistvænni framtíð. Ferðaskipulagning hefur alla tíð fylgt þessum rekstri og hefur þáttur hennar aukist til muna síðustu ár. Fyrirtækið býður upp á ýmsar ferðir til lengri eða skemmri tíma bæði fyrir íslenska og erlenda ferðamenn.