Ferðir um Ísland síðan 1969
Njóttu ferðarinnar með þínum hóp í rútu frá okkur!
GTS er fjölskyldufyrirtæki, stofnað árið 1969. Við rekum hópbifreiðaþjónustu og eigin ferðaskrifstofu og skipuleggjum heildarferðir um Ísland fyrir hópa og erlendar ferðaskrifstofur. Það felur í sér leiðsögn á mörgum tungumálum, gistingu, máltíðir og afþreyingu sem hentar hverjum hópi.
Framúrskarandi þjónusta er kjarninn í öllu sem við gerum. Í gegnum árin höfum við skapað okkur sterka stöðu í greininni og leggjum áherslu á að viðhalda þeim háu gæðakröfum sem við höfum sett okkur. Við leitum stöðugt leiða til að gera enn betur.
Rafknúnu rúturnar okkar sýna að rafvæðing er raunhæfur kostur í hópferðum á Íslandi. Við viljum vera í fararbroddi orkuskipta í greininni, með minni losun og hreinna umhverfi að leiðarljósi.
Fréttir
Nýr glæsilegur rafmagnshópferðabíll í flota GTS
GTS hefur tekið í notkun glænýan 45 farþega rafdrifinn hópferðabíl, sem er kærkomin viðbót við ört stækkandi rafmagnsflota fyrirtækisins. Rafmagnsfloti GTS telur nú 10 rafdrifin ökutæki, þar á meðal hópferðabíla og strætisvagna. Fleiri bílar eru einnig á leiðinni....
Framúrskarandi fyrirtæki
GTS ehf fékk á dögunum viðurkenningu frá Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki.
Grænu bílarnir nú enn grænni
Í vikunni bætist Yutong rafmagnsrúta í flotann hjá GTS. Þetta er lúxusrúta fyrir 49 farþega, með leðursætum, USB hleðslu við öll sæti og salerni. Á næstunni er svo væntanleg önnur rafmagnsrúta. Grænu bílarnir okkar eru því að verða enn...


